Þrítugur belgískur ríkisborgari er ákærður fyrir að vera fyrirliði glæpahóps sem gerði hryðjuverkaárásirnar í París árið 2015 og í Brussel árið 2016. Í París voru 130 myrtir og í Brussel voru 32 myrtir. Maðurinn er sagður heita Yassine Atar. Hann á ættir að rekja til Norður Afríku eins og margir í þeim glæpahópi sem hann er talinn fyrirliði fyrir. Flestir í hópnum eru fæddir í Belgíu og eiga langa afbrotaferla að baki eins og sakaskrá þeirra sanna en fyrir misalvarleg hegningarlagabrot.
rtá