Meint hópnauðgun: sýknudómi áfrýjað

Móðir stúlkunnar sem kærði fimm pilta fyrir nauðgun í Breiðholti í fyrra, segir það mikinn létti að ríkissaksóknari hafi ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur málinu. Stúlkan brotnaði niður þegar sýknudómur Héraðsdóms lá fyrir.
 

Piltarnir voru fyrir fjórum vikum sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að nauðga stúlkunni, sem þá var 16 ára, í Breiðholti í maí í fyrra. Einn þeirra var dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að mynda atvikið. Honum var að auki gert að greiða stúlkunni 500 þúsund í miskabætur.

Lilja Björnsdóttir, móðir stúlkunnar, segir á fréttavef RÚV í gær það vera mikinn létti að málinu sé áfrýjað: \"Við erum bara mjög fegin. Við vonuðumst eftir því að þessu yrði áfrýjað, því að sýknudómurinn var áfall fyrir okkur,“ segir Lilja.

Hún segir mikilvægt að málið fari alla leið í dómskerfinu: \"Ég hugsa að þetta verði að fara alla leið, því að þetta er alvarlegt mál og það er orðið tímabært að koma skilaboðum út í þjóðfélagið, hvernig við viljum hafa samfélagið okkar.“ Hún vonar að málið fari vel og eitthvað gott komi út úr þessu. „Okkur er öllum létt að áfrýjunin skuli vera komin allavega, og vonandi kemur bara eitthvað gott útúr þessu fyrir alla,“ segir Lilja á RÚV í gær.