Meint hópnauðgun: réttur dómur, en

Svala Ísfeld, dósent við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í kynferðisbrotamálum segir niðurstöðu héraðsdóms í meintu hópnauðgunarmáli í Hlíðunum vera lögfræðilega réttan miðað við þau gögn sem liggi fyrir, en geldur varhug við kærum meintra gerenda á hendur þolendum á rannsóknarstigi.

Þetta kom fram í þættinum Lög og réttur á Hringbraut á miðvikudagskvöld, en sjá má þáttinn hér á vef stöðvarinnar. Niðurstaðan hafi verið á þann veg, að sögn Svölu, að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að sanna að hinir ákærðu hafi brotið gegn vilja stúlkunnar. Ekki hafi heldur verið sannað að hinir ákærðu hafi haft ásetning til að brjóta gegn vilja stúlkunnar.

Varðandi spurninguna hvort kröfur um sönnun séu of strangar í kynferðisbrotamálum sagði hún að kröfur lögum samkvæmt væru hinar sömu sönnunarkröfur í kynferðisbrotamálum og öðrum sakamálum um sönnun og þar giltu því ekki strangari kröfur.  Veruleikinn væri hins vegar sá að í þessari tegund mála væri um að ræða veikari sönnunargögn og fyrir vikið væri sönnunarstaðan oft erfið.

Svala lýsti að lokum yfir áhyggjum af því hvernig þróun mála væri á frumstigi rannsókna í málum þar sem kært er fyrir kynferðisbrot; í nýlegum málum hafi þeir aðilar sem hafa verið kærðir kært strax á móti fyrir rangar sakargiftir. Rannsókn yrði að hafa sinn gang áður en svo bratt væri farið í vörnina.

Þáttastjórnandi og Svala voru sammála því að umræða öll um þessa tegund mála á rannsóknarstigi og þar til dómar liggja fyrir þurfi að vera málefnaleg en á sama tíma gagnrýnin, en alls ekki á þann veg að dómstóll götunnar tæki málin í sínar hendur.

Lög og réttur er á dagskrá Hringbrautar öll miðvikudagskvöld.