Í Kvennaráðum kvöldsins á Hringbraut verða megurnarkúrar og heilbrigði til umræðu í hópi góðra gesta Bjarkar Eiðsdóttur, en umræðan kemur í rökréttu framhaldi af síðasta þætti hennar sem fjallaði um útlitsdýrkun og líkamsvirðingu.
Þættir Bjarkar, sem frumsýndir eru klukkan 20:30 á föstudagskvöldum hafa vakið mikla athygli fyrir efnistök sín, en hún er óhrædd við að fjalla þar um viðkvæm málefni kvenna og samskipti kynjanna af hispursleysi og einlægni.
Í þætti kvöldsins segir Ragnheiður M. Kristjónsdóttir frá reynslu af fjölda megrunarkúra sem hún hefur prófað á undanliðnum árum, en nú er hún í 12 spora kerfinu og hefur misst 40 kíló á tiltölulega stuttum tíma.
Aðrir gestir þáttarins eru Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur og Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli en hún er klínískur heilsusálfræðingur.
Kvennaráð eru frumsýnd klukkan 21:30 í kvöld.