Fyrstu tónleikar Megasar í húsi Halldórs Laxness, á Gljúfrasteini verða á morgun, sunnudaginn 3.júní.
Gljúfrasteinn var mikið tónlistarheimili en ýmsir heimsþekktir tónlistarmenn héldu þar tónleika auk þess sem Halldór sjálfur var prýðilegur píanóleikari og mikill tónlistarunnandi.
Stofutónleikar hafa verið haldnir á Gljúfrasteini frá því sumarið 2006 og eru þeir orðnir 158 talsins þar sem samtals 331 tónlistarmaður hefur komið fram.
Alls verða haldnir 13 tónleikum með helstu kanónum í íslensku tónlistarlífi.
Meðal þeirra sem koma fram eru fyrrgreindur Megas sem kemur fram ásamt Kristni H. Árnasyni gítarleikara, Ari Bragi Kárason trompet og Eyþór Gunnarsson píanó láta laglínu og spuna leiðast í harmóníu út í óvissuna á sjálfan þjóðhátíðardegi Íslendinga, Ragnhildur Gísladóttir og Björgvin Gíslason sem koma fram með söng og leik á snittubassa og sitar og Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur mun flytja lög við ljóð Halldórs Laxness.
Þá mun Diddú seinna í sumar heiðra minningu Auðar Laxness, húsfreyjunnar á Gljúfrasteini í tilefni af 100 ára afmæli hennar. Undirleikur verður í höndum Helgu Bryndísar Magnúsdóttur og í ágúst munu strákarnir í Pollapönki verða með fjöruga barnaskemmtun.
Dagskrána og upplýsingar má nánar sjá hér