Íslendingar eru þjóða kunnastir fyrir allt það æði sem grípur þá með reglubundnu millibili - og nú er það Nespressó-æðið; svo virðist sem allir landsmenn séu að verða sér úti um einu og sömu kaffivélina, rétt eins og fótanuddtækið forðum daga.
Það undarlega við þetta nýjasta æði landsmanna er að það er jafn auðvelt að verða sér úti um græjuna sjálfa, sem útbýr kaffið - og það er erfitt að kaupa sjálft kaffið. Vélarnar eru seldar í kunnum raftækjabúðum víða um land, en svo er í pottinn búið að hvorki þeim né öðrum verslunum hér á landi er heimilt af framleiðanda kaffisins að selja svarta drykkinn í þeim hylkjum sem vélarnar eru gerðar fyrir.
Unnendur þessara vinsælu kaffivéla, sem vægast sagt hafa slegið í gegn hér á landi, verða því annað tveggja að láta sér líka önnur hylki sem vélarnar eru þó ekki gerðar fyrir, ellegar að fara í banka og millifæra inn á erlendan reikning Nesperssó og fá kaffið sent í póstkröfu.
Nánar var fjallað um þessi furðulegu viðskipti í þættinum Allt er nú til á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á hringbraut.is.