Mega drýgja hagsmuni maka sinna

Ekkert í þingsköpum kemur í veg fyrir að Páll Jóhann Pálsson alþingismaður Framsóknarflokksins geti notað atlvæði sitt á Alþingi til að bæta hag eiginkonu sinnar, en hún er útgerðarkona sem fengi í sinn hlut 50 milljóna króna virði af makríl, nái málið sem því tengist fram að ganga í atvinnuveganefnd þingsins. Þar er Páll Jóhann nefndarmaður.


Málið komst í hámæli í gær þegar þrýst var á Pál Jóhann að víkja sæti úr nefndinni á meðan ákvörðun um aukinn makrílkvóta var tekin fyrir í nefndinni. Var mat þeirra sem það lögðu til að Páll Jóhann væri vanhæfur í málinu. Þegar þingsköp eru hins vegar skoðuð í þaula sést að vanhæfisreglur nær aðeins til þess ef þingmaður hefur sjálfur hag af fjárveitingum Alþingis. Ekkert er þar kveðið á um hag maka þingmanns.


Sjálfur hefur Páll Jóhann ekki talið sig vera vanhæfan í þessu máli og ber þar fyrir sig þau rök að um almenna aðgerð sé að ræða að hálfu löggjafarvaldsins.