Daddytoo-hópurinn vill laust starf á dv: vilja hafa áhrif á fjölmiðlaumfjöllun, tækla femínista og styðja feður

„Eru ekki einhverjir vel skrifandi og góðir pennar hérna sem gætu hugsað sér að vinna hjá og skrifa í DV og bæta þá upp ýmsan málefna skort og opna á útilokuð málefni sem vantar í umræðuna síðustu áratugina.“

Þetta skrifar Helgi Helgason í Facebook grúppuna umdeildu #Daddytoo og deilir tilkynningu frá DV þar sem auglýst er eftir blaðamanni. Meðlimum #Daddytoo finnst halla á karlmenn þegar fjallað er um foreldrajafnrétti, málefni feðra eða heimilisofbeldi í fjölmiðlum. Hafa DV og Stundin verið sökuð af Gunnari Kristni Þórðarsyni um vera þeir fjölmiðlar sem hafi andúð á foreldrajafnrétti og málefnum feðra. Þessu vilja meðlimir #Daddytoo breyta og hafa stungið uppá að sækja um vinnu á DV svo þeir geti komið sínum boðskap á framfæri.

#Daddytoo-hópurinn var stofnaður í kjölfar #metoo byltingarinnar. Hefur hópurinn verið harðlega gagnrýndur af femínistum sem segja ofbeldismenn vera í forsvari sem og að ósmekklegt sé að nýta sér byr metoo-byltingarinnar.

Einn af þeim sem kann að meta þá uppástungu að einhver meðlima Daddytoo-hópsins sæki um á DV er Dofri Hermannsson, formaður félags um foreldrajafnrétti. Slíkt hið sama gerir Friðgeir Örn Gunnarsson sem steig fram í umdeildu viðtali á DV þegar miðillinn greindi frá stofnun hópsins og birti viðtal við fjóra meðlimi #Daddytoo. Barnsmæður þriggja viðmælanda hafa sakað fyrrverandi sambýlismenn sína um ofbeldi. Í Facebookgrúppunni Aktivismi gegn nauðgunarmenningu var viðtal DV við mennina gagnrýnt sem og stofnun Facebookhópsins #Daddytoo.

Sigfús Atli Unnarsson, sem var í framboði fyrir Karlalistann í síðustu borgarstjórnarkosningum, lýst vel á hugmyndina. Segist hann hafa eldheitar skoðanir og þá hafi skorti almenna umræðu og segist hann geta hugsað sér að taka að sér rannsóknarblaðamennsku um þau mál. Síðan kveðst hann geta tekið að sér að afsanna falsfréttir og vera með fastan dálk og stingur hann uppá að dálkurinn fái nafnið: „Mótefni við femínisma“. Þar gæti hann hugsað sér að kryfja áróður femínista.

Kristinn Sigurjónsson kveðst vona að Sigfús fái vinnuna, þar sem hann telur blaðið ekki geta versnað. Kristinn var lektor við HR en var rekinn eftir að DV vakti athygli á ummælum sem hann lét falla í lokaðri Facebook-síðu sem nefn­ist Karl­mennsku­spjallið. Þar sagði hann m.a. kon­ur troða sér inn á vinnustaði þar sem karl­menn vinna. Þá sagði hann að kon­ur eyðileggðu vinnustaðina því karl­menn eigi að „tala, hugsa og hegða sér eins og kerl­ing­ar, allt annað er áreiti“. Seinna baðst hann svo afsökunar á ummælunum í samtali við Morgunblaðið:

„Ég þarf að biðja heiðarleg­ar kon­ur af­sök­un­ar á því að hafa mis­boðið þeim með þessu orðfæri.“

Kristinn átti síðan eftir að höfða mál og taldi að uppsögn hans hefði verið ólögleg.

Upphafsmaður umræðunnar, Helgi, segir þá að börn og feður þurfi að eignast málsvara hjá fjölmiðlum og lausa starfið hjá DV sé kjörið tækifæri. Kristinn svarar með tengli á frétt DV um hans umdeildu ummæli sem áður er getið: Kristinn segir:

„DV tók niður þann sem hafði svo sannarlega barist fyrir réttindum feðra og barna.“

Helgi bætir svo við að honum lítist vel á stefnuna en telur líklega myndi DV frekar bera hag femínista fyrir brjósti og koma í veg fyrir að jákvæðar fréttir af karlmönnum og börnum þeirra rati fyrir augu lesenda. Undir það tekur Kristinn og lýkur þá umræðunum. Ekki er búið að skipa í starfið á DV.