Zenter, sem sinnir meðal annars rannsóknum og markaðsgreiningu, gerði fyrir ári síðan greiningu á mögulegum áhrifum Cosco hér á landi. Bjarki Pétursson frá Zenter, segir að þá hafi komið á óvart hve áhyggjulaust íslensk fyrirtæki voru: „Það kom okkur á óvart hve þau voru værukær\", segir Bjarki en Hagar hafi þó undirbúið sig vandlega.
Bjarki bendir á að 75 prósent af hagnaði Costco komi frá meðlimagjöldunum. \"Það gengur allt út á að heilla þig og eignast þig sem viðskiptavin\", segir Bjarki á Þjóðbraut.
Costo er annar stærsti verslunarrisinn í heiminum með 14 þúsund milljarða veltu á meðan íslenski smásölumarkaðurinn veltir 400 milljörðum. „Ég held að menn þurfi núna að róa sig aðeins og horfa til næstu tveggja til þriggja ára og sjá hvað Costco gerir”, segir Bjarki og að mörgum spurningum sé ósvarað svo sem hvort Costco muni kveikja á internetsölunni, hefjatryggingasölu, bílasölu, selja ferðalög og fleira.
Bjarki Pétursson var ásamt Kjartani Erni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Verslunargreiningar í síðasta þætti Þjóðbrautar.