Meðalkona er 27 ára með fyrsta barn

Aldur kvenna er smátt og smátt að hækka á Íslandi þegar að barnseignum kemur. Þannig var meðalaldur kvenna með sitt fyrsta barn árið 2014 27 ára sem er fjórum árum eldri en konur með sitt fyrsta barn árið 1984.


Þetta kemur fram í svari Ragnheiðar I. Bjarnadóttur, sérfræðilæknis á Kvenna- og barnasviði Landspítala háskólasjúkrahúss til upplýsingaveitunnar spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. 


Á vef Hagstofunnar má sjá að fæðingum barna fer ekki fjölgandi á þessu sama tímabili, en börn á fyrsta ári eru að jafnaði 4.300 til 4.400 á ári.