Nýjar meðalstórar íbúðir á góðum stöðum í Reykjavík munu í mörgum tilvikum kosta yfir 80 milljónir króna og í sumum tilvikum mun fefmetraverð þeirra nálgast 600 þúsund krónur, næstum þrefalt á við meðalíbúð í úthverfum.
Þetta er mat Péturs Guðmundssonar forstjóra Eyktar sem segir við Morgublaðið í dag að mikil spurn sé eftir vönduðum 150 fermetra íbúðum í nýjum fjölbýlishúsum á grónum stöðum í borginni þar sem áhersla er lögð á gæði og þægindi. Ástæðu þessa háa verðs megi rekja til hás lóðaverðs á eftirsóttum stöðum og fleiri lyftna í hverju húsi, svo og íburðar sem felist í stórum svefnherbergjum með baðherbergi og fataherbergi, auk stærri svala en gengur og gerist með venjulegar fjölbýlishúsaíbúðir.
Hann segir við blaðið að markhópurinn sem helst horfi til eigna af þessu tagi sé fólk um og upp úr miðjum aldri sem vilji minnka við sig.