Launahækkanir í kjölfar nýsamþykktra kjarasamninga hafa þegar rýrnað að verulegu leyti vegna verðhækkana á nauðsynjavöru, en alls hafa sautján birgjar hækkað verð hjá sér frá 20. júní, frá 1,5% upp í 15%.
Að jafnaði hefur vöruverð verið að hækka um 5% á þessum tíma sem liðinn er frá undirritun nýrra kljarasamninga hjá stærstum hluta starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Þorsteinn Víglundsson segir í Fréttablaðinu í dag að það hafi verið viðbúið að hluti þessara hækkana hefði áhrif á verðbólguna, enda hefði verið fyrirséð að öll fyrirtæki myndu ekki geta mætt þeim launahækkunum sem um var samið nema með því að velta þeim að einhverju leyti út í verðlagið. Hann kveðst þó vona að atvinnurekendur reyni að hagræða hjá sér og að fyrirtæki leiti allra annara leiða til að mæta þessum kostnaðarhækkunum. En þetta hafi alltaf legið fyrir, bendir hann á: \"Til þess að verðlag sé stöðugt verða kjarasamningar að vera ábyrgir og unnir innan þess svigrúms sem er til launabreytinga.\"
Þuríður Hjartardóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna tekur undir með Þorsteini og segir að við þessum verðhækkunum hafi mátt búast að einhverju leyti. menn beri fyrir sig kjarasamningana, en einnig hafi þau hjá samtökunum verið að heyra skýringar á borð við hærri flutningskostnað og hækkun á rafmagnsverði.