Meðalaldur hækkað um 6 ár frá 1985

Árið 2014 var meðalævilengd karla 80,6 ár og meðalævilengd kvenna 83,6 ár á Íslandi. Þetta sýna nýjar tölur Hagstofu Íslands, en þar kemur fram að frá árinu 1985 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum árum í meðalævilengd. 

Meðalævilengd sýnir hve mörg æviár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu, ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Sé horft á tíu ára tímabil, 2004-2013, var meðalævi karla á Íslandi og í Sviss 79,1 ár og skipuðu þeir fyrsta sætið meðal Evrópulanda. Fast á hæla þeim komu karlar frá Svíþjóð og Liechtenstein (78,5 ár), þá Ítalíu (78,3) og Noregi (77,9 ár). Stysta meðalævilengd evrópskra karla er í Eistlandi (68,8), Lettlandi (66,4) og Litháen (66,1).

Á sama tíu ára tímabili, 2004-2013, var meðalævi kvenna í Frakklandi og á Spáni 84,1 ár og skipuðu þær fyrsta sætið í Evrópu. Á eftir þeim koma konur frá Sviss (83,8), Ítalíu og Liechtenstein (83,6) og Íslandi (82,7 ár). Meðalævilengd kvenna er styst í Búlgaríu (76,8), Makedóníu (76,3) og Serbíu (76,1 ár).

Árið 2014 létust 2.049 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.050 karlar og 999 konur. Dánartíðni var 6,3 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði 2,1 barn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2014, en ungbarnadauði er minnstur á Íslandi af öllum löndum Evrópu.