Skömmu fyrir klukkan sex í morgun eða klukkan 05:39 barst tilkynning um vopnaðan mann í Austurbænum. Var maðurinn staddur inni á lokuðu vinnusvæði, vopnaður bæði hníf og öxi. Þá var maðurinn einnig með fíkniefni á sér. Í skeyti lögreglu kemur fram að hann sé nú vistaður í fangageymslu lögreglu.
Þá hafa fjögur innbrot verið tilkynnt í morgun, eitt í vesturborginni annað í austurborginni og það þriðja í Kópavogi. Þar hafði bifreið húsráðanda einnig verið tekinn. Einnig barst tilkynning um innbrot í nýbyggingu í Kópavogi.