Með ó­um­beðna hótel­gesti í for­stofunni

Söng- og leikkonan Guðný María Arnþórsdóttir, sem þekkt er fyrir söng- og tónlistarmyndbönd sín á YouTube, glímir nú við yfirgangssama nágranna. Á Facebook-hópnum Langholtshverfi - 104 greindi hún frá því að nýtt fólk vaði á hverjum degi í gegnum forstofu hennar. Ástæðan sé sú að nágrannarnir hefðu opnað gistirekstur í risíbúð í húsinu sem hefur sama inngang og íbúð Guðnýjar.

„Geta nágrannar mínir opnað hótel í sama inngangi og ég, án þess að spyrja mig?“ spyr Guðný.

Guðný greindist með ólæknandi beinmergskrabbamein fyrr á árinu. Hún hefur þó haldið bjartsýni sinni og segist ætla að keppa á Eurovision með frumsamið lag þegar hún verður 120 ára.