Með fimm bækur fyrir jólin

Kópavogsbúinn Gunnar Sigurjónsson er marghamur í meira lagi og sannar það fyrir þessi jólin þegar ekki færri en fimm bækur koma út eftir kappann sem vitaskuld hannar þær sjálfur, enda þrautreyndur umbrotsmaður.

Gunnar þýðir ekki einasta tvær bækur fyrir börn um Skósveinana heldur og einnig aðra um hundaþjálfun sem er í meira lagi áhugaverð bók um það hvor ráði á heimilinu; hundurinn eða maðurinn. 

Þá kemur Gunnar að skrifum á bókinni Það er gott að búa í Kópavogi ásamt félaga sínum Guðjóni Inga Eiríkssyni hjá bókaútgáfunni Hólum og saman stilla þeir líka strengi sína í hryllings- og draugasögum fyrir harðgera krakka og unglinga sem vissara er að lesa undir góðum ljóslampa.

Það er sagt að Íslendingar séu bókaþjóð. 

Ef það er rétt, er Gunnar bókamaður.