Með ferðatöskur fullar af þýfi

Þrír erlendir ríkisborgarar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram á föstudag í tengslum við rannsókn lögreglu á umfangsmiklum greiðslukortasvikum. Mennirnir leigðu sér íbúð á höfuðborgarsvæðinu í gegnum airbnb-vefsíðuna og voru með ferðatöskur fullar af vörum í óuppteknum umbúðum.
 

Vísir greindi fyrst frá málinu á mánudag, en mennirnir höfðu verið leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur á laugardagsmorgun. Hæstiréttur staðfesti svo gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir þeim í gær.

Fram kemur í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir á ruv.is í morgun, að grunur um eitthvað misjafnt hafi vaknað þegar reynt var að panta fartölvu í gegnum netverslun hér á landi þar sem gefin var upp kennitala sem ekki hafi staðið. Lögreglan leitaði eftir upplýsingum hjá færsluhirðafyrirtækjum og í ljós kom að fleiri pantanir höfðu verið gerðar hjá netverslununum sem senda átti á sama heimilisfang.

Í síðustu viku var vara pöntuð og greitt fyrir hana með stolnum greiðslukortaupplýsingum sem senda átti á þetta heimilisfang.

Lögreglan lagði í framhaldinu gildru fyrir meinta fjársvikara þar sem hún fékk sendingarfyrirtæki til að afhenda annan pakka. Þegar mennirnir tóku við pakkanum voru þeir handteknir. Fram kemur í greinargerðinni að lögreglan hafi fengið leyfi til að leita í húsnæðinu - þar fundust ýmsar vörur, óuppteknar í umbúðum, sem búið var að pakka ofan í ferðatösku.

Í greinargerð lögreglustjórans segir að mennirnir hafi leigt íbúðina í gegnum vefsíðuna airbnb - ósamræmi hafi verið í framburði þeirra um greiðslu fyrir ferðalag þeirra hingað til lands og telur lögregla að þetta sé liður í skipulagðri brotastarfsemi sem teygi anga sína til fleiri landa.

Lögreglustjórinn segir að lögreglan þurfi að leita aðstoðar erlendra löggæslustofnana og eftir atvikum greiðsþjónustufyrirtækja til að upplýsa málið og til að hafa uppi á hugsanlegum samverkamönnum þremenningana.