Mde verndar frelsi einstaklingsins fyrir ofríki ríkisvaldsins

Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður segist ekki sammála málflutningi um að fullveldi Íslands sé ógnað með nýlegum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Það komi á óvart að slík gagnrýni heyrist frá hægri, þar sem frelsi einstaklingsins er í hávegum haft. Kjarninn greinir frá.

„Ætli það sé ekki meira póli­tísk ákvörðun og póli­tísk rök frekar en lög­fræði­leg sem liggja þarna að baki,“ sagði Sig­ríður Rut Júl­í­us­dótt­ir, lög­maður á Rétti, um þann vilja margra að áfrýja niðurstöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu til efri deildar dóm­stóls­ins. Hún seg­ist þó ekki í sjálfur sér að gagn­rýna það neitt harka­lega að fólk vilji áfrýja dómnum þang­að. Fyrir því séu rök.

Sig­ríður Rut var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í frétta- og umræðu­þætt­inum 21 á Hring­braut á miðvikudaginn var.

Hún sagði í viðtalinu að nú sé kannski kom­inn sá tíma­punktur fyrir Íslend­inga að fara betur ofan í það hvernig við viljum skipa dóm­ara og eftir hvaða kerfi það sé gert. „Fyrir mitt leyti er ég ekk­ert alls ósátt við kerfið eins og það var sett upp, hefði því verið fylgt. Ég vil miklu frekar að hæf­is­reglur ráði dóm­ara­vali heldur en eitt­hvað ann­að.“

Hún nefnir Banda­ríkin sem dæmi þar sem slembival for­set­ans ræður því hverjir eru til­nefndir til dóm­ara­starfa. „Ég vil bara sjá hæf­asta ein­stak­ling­inn og ég vil bara vera sann­færð um að hæf­ustu ein­stak­ling­arnir séu valdir til að gegna stöðum dóm­ara í hvert sinn. Mér er alveg sama hvar í póli­tík­inni þessir dóm­arar eru. Mér er alveg sama hvort þeir séu hægri menn eða vinstri menn. Ég vil bara að þeir séu hæf­ir.“

Talað hefur verið um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu, í ákveðnum kreðsum, sem ein­hvers konar árás á full­veldi Íslands. Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi dóm­ari við Hæsta­rétt, er á meðal þeirra sem hafa gert það. Arnar Þór Jóns­son, dóm­ari við Héraðs­dóm Reykja­vík­ur, kall­aði dóm­inn nýja teg­und óskapn­aðar í blaða­grein og Bjarni Benedikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði að niðurstaðan hefði komið sér í opna skjöldu og kall­aði eftir umræðu um hvort Íslend­ingar hafi „fram­selt túlk­un­ar­vald yfir íslenskum lögum til Evr­ópu“.

„Ég er ekki sam­mála þessum rökum og þessum mál­flutn­ing­i,“ sagði Sig­ríður Rut. Hún benti á að þessi gagn­rýni virð­ist ein­ungis heyr­ast frá hægri. „Það finnst mér svo­lítið ein­kenni­legt vegna þess að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn öðrum fremur verndar frelsi ein­stak­lings­ins.[...]Það er verið að vernda frelsi ein­stak­lings­ins fyrir ofríki rík­is­valds­ins. Ég hélt að það væri yfir­skrift Sjálfstæðisflokks­ins og kemur mér veru­lega á óvart sú orð­ræða sem mér finnst ýmsum embættismönnum þjóð­ar­innar til vansa að við­hafa. Og ég deili ekki þeim áhyggjum að hér sé eitt­hvað um fram­sal á full­veldi í þessu skyni. Hér er verið að vernda mann­rétt­indi, ekk­ert ann­að.“

Viðtalið við Sigríði Rut í heild sinni er að finna hér:

<iframe width=\"560\" height=\"315\" src=\"https://www.youtube.com/embed/LguPX8eKFWQ\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture\" allowfullscreen></iframe>