Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) hefur sent íslenska ríkinu spurningar vegna kæru sem þrír núverandi blaðamenn Stundarinnar hafa sent vegna gamals máls.
Þetta upplýsir Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar á facebook.
Hann, Ingi Freyr Vilhjálmsson og Reynir Traustason sendu kæruna til dómstólsins sem hefur brugðist við með því að senda íslenska ríkinu spurningar sem fyrr segir. „Langflestum kærum til mannréttindadómstólsins er vísað frá áður en þær komast á þetta stig,“ segir Jón Trausti.
Ástæðan fyrir kærunni var að þeir þrír voru dæmdir fyrir meiðyrði fyrir að segja sanna frétt í DV um að lögreglan væri að rannsaka lektor í viðskiptafræði vegna gruns um brot í Sigurplastsmálinu svokallaða. Íslenskir dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að lögreglan hefði ekki verið að „rannsaka“ málið heldur „skoða“ málið. Þá skipti engu þótt maðurinn sem fjallað var um hefði verið rannsakaður, ákærður og líka dæmdur.
Jón Trausti segir: „Önnur spurning Mannréttindadómstólsins til íslenska ríkisins er á þessa leið: „Var inngripið nauðsynlegt í lýðræðissamfélagi? Með öðrum orðum, var það gert vegna mikilvægrar samfélagslegrar þarfar, voru þær ástæður sem voru tilgreindar af yfirvöldum til að réttlæta að inngripið viðeigandi og nægjanlegar, og voru viðurlögin í samræmi við lögmætan tilgang þeirra?“
Hann bætir við: „Ég man eftir því þegar gerð var krafa um fjárnám í eigum mínum og okkar fyrir orðin sem við notuðum, þótt þau væru sönn, á sama tíma og maðurinn var fyrir dómi fyrir það sem við sögðum að hefði verið rannsakað af lögreglu, en dómstólar sögðu að hefði bara verið skoðað.“
Minna má á að Erla Hlynsdóttir blaðamaður hefur hvað eftir annað lagt íslenska ríkið eftir að dómum í meiðyrðamálum var snúið við hjá MDE.