Mde hakkar í sig niðurstöðu hæstaréttar

Þórir Guðmundsson fréttastjóri Stöðvar 2 og Björgvin Guðmundsson, fyrrverandi ritstjóri Viðskiptablaðsins og fyrrverandi fréttastjóri á Fréttablaðinu, eru gestir Sigmundar Ernis í Ritstjórunum í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræða þeir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu vegna skipunar Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra á fjórum dómurum í Landsrétt, sem dómstóllinn úrskurðaði í morgun að hafi brotið gegn mannréttindasáttmála Evrópu. Þeir ræða einnig kjaradeilurnar, Samherjamálið, ferskt kjöt og Brexit.

Þórir segir orðalagið sem er að finna í niðurstöðu dóms MDE vera allsvakalegt. „Bara þannig að það sé ljóst, þetta er ekki bara dómsmálaráðherra, þetta er ekki bara Sigríður Andersen, þetta er líka Alþingi sem fær þarna áfellisdóm. Það sem er verið að tala um er að það sé verið að vega að undirstöðum réttarríkisins með því að standa ekki þannig að málum við ráðningu á dómurum að menn geti fengið réttláta málsmeðferð. Það eru engin tvímæli í þessu, þetta er alveg ljóst. Það er verið að segja að þetta var ólöglegt, það er verið að setja Ísland í flokk með Ungverjalandi og Póllandi, sem að Mannréttindadómstóllinn og Evrópuríki hafa verið að setja út á með að stjórnvöld hafi ætlað að ráðskast um það hverjir sætu í hæstarétti eða öðrum dómstólum í landinu. Við erum aldeilis að fá á baukinn, Ísland, með þessari niðurstöðu.“

Björgvin bendir á að Hæstiréttur hafi dæmt skipun Sigríðar á dómurunum fjórum löglega. „Ég held að það séu alveg hreinar línur að skipunin var lögleg, það var málsmeðferðin sem var ábótavant. Hæstiréttur kvað upp úr með það að skipun þessara dómara sé lögleg. Eins og ég túlka þessar fyrstu niðurstöður sem ég hef séð er að mér finnst þetta ansi hart orðað hjá Mannréttindadómstólnum og efast um að þetta sé rétt og mig grunar að þessu verði bara vísað til einhvers konar yfirréttar. Því að ég get ekki séð, og ég tala bara fyrir mig persónulega og er ekki löglærður, að þessi einstaklingur sem þarna á í hlut [Guðmundur Andri Ástráðsson] og fór með þetta mál fyrir Mannréttindadómstólinn, að það hafi verið brotið á honum og að hann hafi fengið ekki fengið óvilhallan dómstól til að dæma í sínu máli fyrir það að keyra próflaus og undir áhrifum vímuefna. Hvernig á hann að fá óréttláta málsmeðferð vegna þess að Sigríður Andersen sinnti ekki einhverri rannsóknarskyldu?“

Þórir segir að MDE gefi lítið fyrir niðurstöðu Hæstaréttar. „Mannréttindadómstóll Evrópu hakkar í sig niðurstöðu Hæstaréttar, segir að rétturinn hafi lýst áhyggjum yfir hinu og þessu og þeir svona líta á það og segja: „En bíddu, svo kemst hann að þeirri niðurstöðu að þetta hafi samt engin áhrif“.“

Aðspurður um hvað dómur MDE gæti þýtt fyrir Sigríði segir Björgvin: „Ég held að þetta sé fyrst og fremst pólitískt högg fyrir hana. En ég held að við verðum svona aðeins að anda með nefinu og bíða eftir að það verði gert betur grein fyrir hvað þetta þýðir og hvað er nákvæmlega sagt í þessum dómi. Fyrstu fréttir benda til þess að fólk er svolítið stóryrt. Það er krafist afsagnar dómsmálaráðherra og þetta mun smitast mjög mikið út í alla pólitíska umræðu.“

Nánar er rætt við Þóri og Björgvin í Ritstjórunum í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.