Mcmaster líka á útleið í washington

Starfsmannaveltan í Hvíta húsi Donalds Trumps heldur áfram á ógnarhraða. The Washington Post segir frá því í dag að Trump ætli að halda áfram að hrista upp í forystuliðinu og skipta út hershöfðingjanum H.R. McMaster, þjóðaröryggisráðgjafa. Hann er nýbúinn að reka utanríkisráðherrann og John Kelly starfsmannastjóri er sagður „á hálum ís.“

Það fylgir fréttinni að Trump ætli að taka góðan tíma í að finna betri eftirmann og jafnframt tryggja McMaster verði ekki niðurlægður með brottvísuninni.

Ljóst hefur verið um nokkurn tíma að McMaster hefur ekki alltaf verið sammála forsetanum í veigamiklum málum. Eins mun hann hafa viðhaft niðrandi ummæli um Trump í einkasamtölum, kallað hann „hálfvita“ og „fífl“ eins og raunin var líka með Tillerson utanríkisráðherra sem Trump rak á Twitter fyrr í vikunni.

Samkvæmt frétt Washington Post er jafnvel gert ráð fyrir enn fleiri breytingum á starfsliði Hvíta hússins á næstunni og að skortur á starfsöryggi sé farin að hafa þar slæm áhrif.

Í frétt The New York Times í gær eru taldir upp nokkrir í starfsliði forsetans sem gætu verið á útleið. Auk McMasters er þar minnst á John Kelly starfsmannastjóra og hann sagður vera „á hálum ís.“