Rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson, sem aldrei hefur haft áhuga á lífssýn íslenskra viðskiptamógúla fór allt í einu að pæla í þessari týpu Íslendinga sem flytur inn hurðarhúna fyrir „hótelin í landinu“ – en út, krem gegn öldrun, úr birkisafa.
Hann segir í nýjasta pistli sínum á hringbrfaut.is að þessi týpa af fólki, sem yfirleitt sé allt með MBA gráðu og uppfullt af klisjum úr sjálfshjálparbókum, sé algerlega sér á báti: \"Þetta fólk, sem oftar en ekki selur straujárn eða „heildarlausnir“ á baðherbergi, nú eða flytur inn frosna skyndirétti eða duft til ísgerðar – rýnir í innflutningstölur og telur einatt að „landið sé að rísa“; og óþrjótandi möguleikar séu í ferðaþjónustu. Og sjúkrahótelum.\"
Hann segir svona fólk fara á inspírerandi morgunverðarfundi og éta þar rúnstykki og drekka kaffi og grænan djús sem eyði appelsínuhúð og kyndeyfð - og nemi þar sannleik af vörum einhvers kvenráðherra í blárri dragt sem sjái sóknarfæri í mannauði og afkomutölum í bankastarfsemi.
Það sem þetta fólk eigi flest sammerkt sé að það er alið upp á súputeningi, skrifar Guðmundur - og er hvergi hættur: \"Það telur að íslenskum höndlurum stafi lítil hætta af því þótt bólugrafnir Kínverjar standi með Peking-öndina í hálsinum – og það telur að „sérstaða“ og „skilvirkni“ íslensks markaðar og kauphallarstarfsemi muni fleyta okkur áfram til hagsældar um leið og Flokkurinn hefur skrifað handa því nýjar leikreglur. Og kennt því, í framhjáhlaupi, að sniðganga þær reglur.\"
Og yfirleitt sé þetta fólk algerlega úr tengslum við venjulega atvinnustarfsemi í landinu, einkum úti á landi, enda sé því slétt sama þótt úthafsrækjustofninn sé týndur og að humarvertíðin sé í molum. Þrenging markaða í Nígeríu komi henni ekki við – eða annað það sem skiptir hinn venjulega Íslending máli.
Og hann endar tilskrif sitt svona: \"Bændur eru þessu fólki þyrnir í augum, einnig Bílastæðasjóður, hrossabjúgu og kommúnistar. Hinn íslenski viðskiptamógúll borðar hollt, er „lausnamiðaður“ og flytur inn hurðarhúna fyrir „hótelin í landinu“ – en út, krem gegn öldrun. Úr birkisafa.\"