John Major fyrrum forsætisráðherra Bretlands kom aftan úr grárri forneskju íhaldsins í vikunni og stakk Theresu May núverandi leiðtoga íhaldsmanna í bakið í Brexit málinu. Major lagði til að May viðhefði opna atkvæðagreiðslu í þinginu um væntanlegan útgöngusamning við ESB með möguleikum á að niðurstaða þingmanna væri síðan borin undir annað þjóðaratkvæði.
Í ræðu sem Major flutti hjá Samtökum skapandi greina í Lundúnum sagðist Major alltaf hafa talað gegn aukinni miðstýringu ESB, gegn Evrunni og gegn Schengen en jafnframt verið raunsær. Kjarni ræðu Majors var líklega eftirfarandi setning: „Ég þekki ekkert fordæmi þess að ríkisstjórn framfylgi stefnu sem gerir bæði land okkar og þjóð fátækari. Þegar slíkt kemur í ljós þarf ríkisstjórnin að breyta um stefnu.“
Allt virðist áfram í uppnámi í breskum stjórnmálum vegna Brexit. Gagnrýnendur hugmyndarinnar um aðra þjóðaratkvæðagreiðslu segja að hún myndi aðeins hella olíu á eldinn. The Economist leggur nú til í fullri alvöru að Bretar fari milliveginn, norsku leiðina, EES. Það sé eina málamiðlunin.
Á meðan stendur Theresa May í ströngu og hafnaði í vikunni kröftuglega síðustu tillögum ESB um lausn á landamærum Írlands og Norður-Írlands, sem í raun mundi þýða að N-Írland yrði að svo gott sem áfram innan sameiginlega markaðarins og undir lögsögu Evrópudómstólsins.