May vill draga assad og rússa til ábyrgðar

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands sagði í Kaupmannahöfn í dag að draga þurfi Assad Sýrlandsforseta og Rússa sem styðja hann til ábyrgðar, ef fréttir um eiturgasárásina á íbúa bæjarins Douma eru á rökum reistar.

Rússnesk stjórnvöld segja þetta hins vegar falsfréttir. Þeir segja sérfræðinga sína ekki hafa fungið nein ummerki um eiturefnavopn á staðnum.

May hitti Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur í Kristjánsborgarhöll, þar sem hún þakkaði meðal annars Dönum fyrir stuðning við Breta í yfirstandandi deilum við Rússa, en Danir ráku tvo rússneska stjórnarerindreka úr landi.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að vænta mætti „meiriháttar ákvarðana“ í málinu af hálfu Bandaríkjanna innan 24-48 klukkustunda.