Theresa May forsætisráðherra Breta sagði í dag að mjög líklega stæðu Rússar á bakvið tilræðið við fyrrum gagnnjósnarann Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu í Salisbury fyrir rúmri viku.
May sagði í mjög harðorðri yfirlýsingu í breska þinginu í dag að taugaeitrið sem feðginunum var byrlað hafi verið af hernaðarlegum toga og verið af gerðinni Novichok. Það efni var þróað var snemma á áttunda áratugnum fyrir sovéska herinn.
Rússneski sendiherrann hefur verið kallaður á teppið í breska utanríkisráðuneytinu til þess að svara því hvort um beina árás af hálfu rússneskra yfirvalda var að ræða, eða hvort Rússar væru að missa stjórn á útbreiðslu eiturefnabirgða sinna.
„Ef við fáum ekki trúverðug svör, þá verðum við að líta svo á að um rússnesk stjórnvöld hafi gerst sek um ólögmæta valdbeitingu gegn breska ríkinu,“ sagði May. „Við ætlum ekki að líða slíkar svívirðilegar tilraunir til að myrða saklausa borgara á á bresku landi.“