Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að gera tilraun til þess að fá útgöngusamningi sínum við Evrópusambandið breytt. Brexit samningur hennar var sem kunnugt er felldur með 230 atkvæða mun fyrir tveimur vikum í neðri deild breska þingsins. RÚV.is greinir frá.
Talsmaður May greindi frá þessu í dag áður en áframhaldandi umræður um samninginn hófust á breska þinginu. Hann sagði að Bretar yrðu að fá samning sem meirihluti þingsins gæti sætt sig við, sem kallaði á vissar breytingar á samningnum.
Í frétt RÚV kemur fram að forsvarsmenn ESB hafi lýst því yfir að undanförnu að samningnum sem May samdi um verði ekki breytt. May hefur sagt að það standi ekki til að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu og að það væri heldur ekki á döfinni að fresta útgöngunni. Bretar munu að óbreyttu ganga úr Evrópusambandinu þann 29. mars næstkomandi, hvort sem það verður með eða án samnings.