Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, mun á morgun freista þess að sannfæra forsvarsmenn Evrópusambandsins um að samþykkja breytingar á útgöngusamningi Breta. Breytingarnar snúa m.a. að fyrirkomulagi landamæra Norður Írlands og Írlands. Vísir.is greinir frá.
Útgöngusamningur May var kolfelldur í neðri deild breska þingsins en síðar samþykkti þingið nokkrar breytingatillögur á samningnum. Þingið vill m.a. að samið verði að nýju um svokallaða baktryggingu (e. backstop) um landamæri Írlands og Norður Írlands og May mun á fundi á morgun reyna að fá forsvarsmenn Evrópusambandsins til að samþykkja þessar breytingar.
Baktrygging þessi snýr að því að reglur Evrópusambandsins um viðskipti gilda enn á Norður Írlandi eftir útgöngu Breta á meðan samið er um varanlega lausn. Baktryggingunni er ætlað að koma í veg fyrir að koma upp hefðbundnum landamærum Norður Írlands og Írlands, sem verður áfram í sambandinu. Hörðustu talsmenn Brexit í Íhaldsflokki May eru mótfallnir baktryggingunni og óttast að hún gæti orðið varanleg.
Forsvarsmenn ESB hafa áður lýst því yfir að samningnum sem May samdi um verði ekki breytt. May hefur sagt að það standi ekki til að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu og að það væri heldur ekki á döfinni að fresta útgöngunni. Bretar munu því að óbreyttu ganga úr Evrópusambandinu þann 29. mars næstkomandi, hvort sem það verður með eða án samnings. Búist er við útganga án samnings gæti leitt til upplausnar í Bretlandi.