Mávur stal veski í reykjanesbæ

Lögreglan á Suðurnesjum greinir frá því að lögregluþjónar í almennu eftirliti hafi tekið eftir glæpamáv fljúga fyrir ofan bifreið þeirra. Lýsa lögregluþjónarnir atvikinu með eftirfarandi hætti:

Í fyrstu fannst þeim eins og að mávurinn væri með dýr í gogginum en þegar betur var að gáð sáu þeir að um veski var að ræða. Þeir veittu mávinum eftirför og náðu honum skammt frá þar sem hann lenti til að kíkja á feng sinn. Í veskinu voru skilríki og var hægt að hafa samband við eigandann. En hann hafði séð mávinn fljúga á brott með veskið sitt,“ segir í tilkynningu lögreglu:

Eigandinn var himinlifandi með að endurheimta veskið en þessi sannkallaði glæpamávur er nú eftirlýstur hjá lögreglu.