Mávavarpið dapurt

Tegundafjöldi æðplantna hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu ár í Surtsey eða um og yfir 60 tegundir en gróðurinn er almennt þroskamikill þetta sumarið vegna ríkjandi og langvarandi úrkomutíðar.

Máfavarpi hefur heldur hnignað í eynni en varp fýla er með eðlilegu móti. Agnarsmá skrautleg flugutegund af frittfluguætt sem fannst á síðasta ári ný fyrir Surtsey og Ísland líka fannst nú aftur og í meiri fjölda.

Árlegur leiðangur líffræðinga Náttúrufræðistofnunar Íslands til Surtseyjar var farinn 16.-19. júlí að þessu sinni. Leiðangrinum fylgdu sérfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands og mosafræðingar frá Háskólanum í Lundi, eldfjallavistfræðingur og náttúruljósmyndari frá Bandaríkjunum og fulltrúi Umhverfisstofnunar. Leiðangurinn var skipulagður í samvinnu við Surtseyjarfélagið og Umhverfisstofnun. Árleg vöktun á landnámi plantna og dýra fór fram á hefðbundinn hátt, auk rannsókna á fléttum og mosum sem ekki eru eins tíðar.

Í niðurstöðum líffræðinganna má sjá hver staðan er á fuglum, gróðri og fléttufungi í Surtsey.´

Úttekt á lífríki í Surtsey er nánar hér.