Matvís, rafiðn og fvm fresta verkfalli

Verulegur skriður er kominn á viðræður Matvís, Rafiðnaðarsambandsins og Félags vélstjóra og málmtæknistarfsmanna við viðsemjendur þeirra og hefur boðuðu verkfalli iðnaðarmanna innan þessara félaga, sem hefjast átti á morgun, verið frestað.


Þessi tíðindi eru mikill léttir fyrir ferðaþjónustuna því verkfall matreiðslumeistara, þjóna og bakara innan Matvís hefði lamað starfsemi margra hótela og veitingahúsa með þeim afleiðingum að vísa hefði þurft fjölda fólks frá stöðunum í þann mund sem háannatími ferðaþjónustunnar er að hefjast. Þá hefði verkfall félaga í Rafiðnaðarsambandinu sett starfsemi sjónvarps- og útvarpsstöðva í uppnám og getað haft landsleik Íslands og Tékklands af þeim tugþúsundum sem komast ekki á leikinn í Laugardal.


Félögin þrjú sem hér um ræðir voru í samfloti með öðrum iðnaðarfélögum í aðdraganda yfirstandandi samningsgerðar, en héldu verkfallshótun sinni áfram eftir að hin félögin aflýstu verkfalli skömmu fyrir helgi. Allt útlit var því fyrir að Matvís, Rafiðn og FVM stæðu við verkfallsáform sín, enda sögðu fulltrúar samninganefnda þeirra um helgina að Samtök atvinnulífsins hefðu engan skilning á kröfum þeirra.


Sá skilningur hefur greinilega aukist, því setja á fullan kraft í samningaviðræðurnar í dag og næstu daga - og í því ljósi er verkfalli frestað.