Matvæli hafa lækkað í verði

Athygli vekur í nýjum tölum Hagstofu Íslands um vísitölu framleiðsluverðs, sem birtar voru í dag að matvæli hafa lækkað í verði um 0,7% á tímabilinu desember 2016 til sama mánaðar 2017.

Á sama tíma hefur vísitala framleiðsluverðs að jafnaði hækkað um 2,4%. Þar af hefur verð sjávarafurða hækkað um 3,8% en annar iðnaður lækkaði um 8,9%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 11,5% en matvæli lækkað, sem fyrr segir, um 0,7% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,1% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 4,3%.