Matvælaglæpir aukast í evrópu

Þúsundir tonna af skemmdum matvælum og matvælum með röngum uppruna merkingum er að finna í verslunum í Evrópu og víðar. Samstarfshópur Europol og Interpol, sem kallast OPSON VI, vinnur að viðamikilli rannsókn matvælaglæpa og hefur fundið slóðir skiplagðrar starfsemi um þetta. Frétt um þetta má lesa um í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.

Rannsóknin tengist glæpsamlegri framleiðslu, merkingum, dreifingu og sölu á matvælum um allan heim. Í yfirlýsingu frá Europol segir að vitað sé um nálægt 50 skipulögð glæpasamtök í þessum efnum. Á heimasíðu Opson má meira sjá hér. Ótal mörg önnur matvæli eru undir í þessum brotum.

Frá því í desember á síðasta ári hefur OPSON rannsakað mál í 67 löndum og lagt hönd á 9,8 þúsund tonn, 26,4 milljón lítra og 13 milljón eintök af matvörum og drykkjarföngum í verslunum, á mörkuðum, á flugvöllum, á veitingahúsum og hjá framleiðendum sem ekki standast lágmarkskröfur um gæði eða merkingar.

Í grein Bændablaðsins eru dæmi sem nefnd eru svikavörur eru áfengi, vatn á flöskum, krydd, fiskur, ólífuolía og kavíar. Auk þess sem víða fannst kjöt í sölu sem var komið vel yfir síðasta leyfilega söludag og jafnvel farið að slá í og kjöt sem ekki var það sem það var sagt vera. Til dæmis hrossakjöt sem selt var sem nautakjöt. Vel á áttunda hundrað manns hafa verið handteknir í tengslum við rannsóknina og verðgildi handlögðu matvælanna er áætlað 230 milljónir evra, sem jafngildir rúmlega 28 milljörðum í íslenskum krónum.