Matthías Johannessen, skáld og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins í yfir 40 ár, segir í samtali við Stundina að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið illa fram gegn syni sínum, Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra. Haraldur skrifaði upp á 57 milljóna króna starfslokasamning fyrir stuttu. Fær hann fjármunina greidda á tveimur árum og mun hann starfa sem ráðgjafi hjá embætti Ríkislögreglustjóra. Ekki er krafist mætingarskyldu og getur því Haraldur komið og farið úr vinnu sinni eins og honum hentar.
Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur og fyrrverandi blaðamaður á Morgunblaðinu, sagði í færslu á Facebook síðu sinni að Matthías hefði á dögunum sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum.
„Hvað sem mönnum kann að finnast um flokkinn held ég að þetta sé slæmur missir fyrir hann,“ sagði Guðmundur á Facebook síðu sinni.
Stundin hafði samband við Matthías og spurði hann hvort hann væri búinn að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum, en hann vildi ekki staðfesta það. Hann sagði hins vegar við blaðamann Stundarinnar að honum hafi þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafa komið illa fram gegn syni hans.
„Mér þótti það, mér þótti það. Þetta er reynslulítið fólk og þetta er ekkert mitt kompaní. Þetta var náttúrlega einhvers konar samsæri gegn drengnum, að mínu mati. Ég hef verið spurður um þetta áður og hef bara svarað því til þá að það sé mitt einkamál. Ég vil ekkert vera að tala um pólitík svona á jólunum, ég hef bara ekki áhuga á íslenskri pólitík. Ég hef ekkert samband við Sjálfstæðisflokkinn, það er alveg rétt. Ég skil það vel að menn hafi einhvern áhuga á því í hvaða flokki ég er en mér þætti það þó meira interessant ef ég hefði gengið í Kommúnistaflokkinn. Það gæti ég ímyndað mér að væri frétt.“ sagði Matthías í samtali við Stundina.
Matthías hefur birt opinberlega dagbækur sínar frá þeim tíma sem hann var ritstjóri Morgunblaðsins. Þar fjallar hann meðal annars um skipun Haraldar í embætti Ríkislögreglustjóra.
„Haraldur sonur okkar var skipaður í embætti ríkislögreglustjóra en það er mikið embætti og krefst ábyrgðartilfinningar og hrokalausrar vizku. Það fer ekki hjá því að við Hanna erum afar stolt af sonum okkar báðum, og fjölskyldum. En þó er ég einkum guði þakklátur á þessum degi. Handleiðsla hans hefur verið eins og móðir mín sagði. Halli hefur unnið sig upp í þetta embætti sjálfur en Þorsteinn Pálsson hefur þá líka sýnt honum mikinn drengskap; óvenjulegan og þá ekki sízt þegar haft er í huga að ég hef stundum yljað honum undir uggum vegna sjávarútvegsstefnunnar, en hann er meiri maður en svo að hann láti það bitna á syni mínum. Við höfum auk þess ævinlega verið miklir mátar. Hann er drenglundaður maður og stór í sniðum. Hann horfir ekki af þúfnakollum. Ég vona að honum farnizt ævinlega vel, bæði í lífi sínu og pólitík, hann á það skilið. Hann hefur vaxið af pólitískum erfiðleikum á sínum tíma og ég gleðst yfir því að hann var ungur á Morgunblaðinu. Vonandi get ég einhvern tíma sýnt honum rækilega í verki vináttu mína og þakklæti.
Ég veit að Halli á eftir að standa sig vel í sínu starfi. Hann er ákveðinn, en hann er líka réttsýnn og viðkvæmur. Hann getur sett sig í spor þeirra sem eiga bágt og ég veit að hann á ekki eftir að leyfa að lögreglumenn ráðist inn á heimili fólks sem grunað er um misferli og það rifið út úr híbýlum sínum fyrir allar aldir í augsýn hungraðra sjónvarpsvéla. Hann hefur sýnt að hann er varkár og góðviljaður. Hann neitaði að vista móður í Síðumúlafangelsi á sínum tíma þegar Valtýr Sigurðsson fógeti ákvað að hún skyldi geymd í einangrunarfangelsinu vegan forræðisdeilu við barnsföður sinn og hafði það eitt til saka unnið að fela barn sitt fyrir yfirvöldum til að halda því á sínum vegum hvað sem öllu forræði liði. Valtýr kærði Halla til dómsmálaráðherra sem var honum sammála um að neita að vista konuna um óákveðinn tíma í Síðumúlanum enda án efa mannréttindabrot.“