Matthías Tryggvi Haraldsson annar söngvari Hatara sagði í samtali við RÚV núna í morgun að það hefði ekki komið annað til greina en að veifa palestínsku fánalitunum í úrslitakeppni Eurovision. Matthías sagði í samtali við RÚV að hann teldi að sveitin hefði brotið reglur Eurovision:
„Það var ekkert endilega áætlunin að brjóta reglurnar af settu ráði. Það er einhver lína þarna. Enginn veit svo sem hvar hún er. Enda er þversögn að segja að þessi keppni sé ópólitísk.“
Þá bætti Matthías við:
„Það var bara ekkert annað í stöðunni. Það er ekki hægt að halda svona keppni sem á að snúast um sameiningu og frið meðal manna, sem er fallegt í sjálfu sér, en miðað við það sem gengur á í þessu landi er ekki hægt að líta framhjá því,“ sagði Matthías og bætti við á öðrum stað:
„Ísraelsmenn, aðrir keppendur, ýmist hrósuðu okkur eða bölvuðu. Þau voru ófyrirsjáanleg viðbrögðin.“