Margir spenntir aðdáendur Royal búðingsins hafa orðið sér út um pakka af nýju tegundinni sem kom í verslanir síðustu helgi. Bragð nýju tegundarinnar er bananasplitt með hvítu súkkulaði.
Strax hafa myndast umræður í spjallhópum um bragðið, þar á meðal á Facebook-síðu Hagkaupa og í Matartips!. Sitt sýnist hverjum.
Einn keypti sér pakka í Hagkaup nýverið, hann segir: „Soldið væmið.“
Önnur segir: „Eftirbragðið er ekki gott.“
Annar var ekki nógu ánægður með bragðsamsetninguna: „Hefði haldið mig við bananabragðið.......þetta hvíta súkkulaði gerir búðinginn væminn.“
Sumir eru þó mjög sáttir: „Hann er ágætur þessi, smá sætur.“
Svo ver einn sem leggur til örlitlar breytingar: „Mæli ekki með að hafa hann rjómalagaðan, þá er hann hálf þykkur. Ég mæli með að nota einungis mjólk, ég held að þannig sé hann mun betri.“