Til stendur að auka aðsókn og umferð um Hlemm á næstu misserum, en í nýju aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er svæðið skilgreint sem þróunarsvæði í forgangi. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri hefur talað fyrir því að þar verði opnaður matarmarkaður.
Viðskiptablaðið greinir frá þessu á vefsíðu sinni í dag.
Þar segir að hugmyndum um matarmarkað við Hlemm hafi verið vel tekið, en þó hafi ekkert verið ákveðið að svo stöddu. Reykjavíkurborg er að taka við rekstri Hlemms af Strætó, en Dagur hefur áður látið það eftir sér að spennandi væri að blanda saman verslun og þjónustu við Hlemm.
Reykjavíkurborg hefur nú þegar auglýst eftir rekstraraðilum að slíkum markaði á svæðinu og er markmiðið að bæta tengingu við miðbæinn og draga erlenda ferðamenn sem og Íslendinga á miðbæjarrölti ofar á Laugaveginn.