Matarlaust fólk fær enga aðstoð: „þetta er hræðilegt ástand“

Bæði Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands hafa lokað fram í ágúst og geta illa staddir því ekki leitað þangað eftir aðstoð. Margir eru matarlausir og þurfa á aðstoð að halda en hafa í fá hús að venda. Margir hafa því brugðið á það ráð að leita til hópsins Matarhjálp Neyðarkall á Facebook en stjórnendur hans leita allra leiða til að hjálpa fólki.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu. Haft er eftir Áslaugu Guðnýju Jónsdóttur, stjórnanda hópsins að ástandið sé hræðilegt. Um 3.600 manns eru í hópnum, bæði fólk sem vantar mat og aðrar nauðsynjar og fólk sem vill hjálpa.

„Við tengjum saman fólk sem vantar hjálp og þá sem vilja hjálpa.“

Er haft eftir Áslaugu sem segir fólk geta óskað eftir hjálp á síðunni og síðan geti þeir sem vilja hjálpa sett sig í samband við þann sem óskar eftir hjálp. Einnig geti fólk haft samband við hana því margir hafi ekki kjark til að koma fram undir nafni og biðja um hjálp. Hún segir það ekki ná nokkurri átt að bæði Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands hafi lokað í tvo mánuði nú í sumar.

„Við erum nú þegar búin að hjálpa um 40 fjölskyldum um mat og nauðsynjar en ég er enn þá með átta fjölskyldur á skrá.“

Segir Áslaug einnig. Hún segir að flesta vanhagi um mat en einnig séu dæmi um fólk sem hefur ekki efni á að leysa lyf út úr apótekum eða eigi ekki föt á börn sín.

Í samtali við Fréttablaðið sagði Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, að samtökin hafi neyðst til að loka í átta vikur í júlí og ágúst vegna fjárhagsstöðu samtakanna.

„Við erum að borga hátt í 1.200 þúsund krónur í húsaleigu bæði hér í Reykjavík og á Reykjanesi. Nú er staðan bara þannig að við sáum okkur ekki fært að vera með opið í júlí og ágúst, bara því miður. Auðvitað finnst okkur þetta mjög leiðinlegt og mjög sárt.“

Hjá Mæðrastyrksnefnd hefur frá upphafi verið lokað yfir sumartímann og sagði Aðalheiður Fransdóttir, framkvæmdastjóri, að þetta væri sumarfrí samtakanna.

Aðalheiður og Ásgerður voru sammála um að marga vanti mat og aðrar nauðsynjar.

Hjá Hjálparstofnun kirkjunnar er opið allt árið og þangað getur fólk leitað eftir aðstoð. Þar eru barnafjölskyldur í forgangi en aðrir sem uppfylla öll skilyrði fá einnig aðstoð þar sem engin önnur hjálparsamtök starfa.