Bófar mata krókinn

Bófar sem smygla aðkomufólki yfir landamæri um allan heim hagsnast um 35 bandaríkjadollar á þessu smygli. Fjöldi aðkomufólks sem er á faraldsfæti á vegum þessarar smyglar lætur lífið ýmsir af vosbúð og kulda eða það ferst í hafi. Hæst er dánatalan meðal þeirra sem freista þessa að sigla frá norðurströnd Afríku til suðurstranda Evrópurríkja við Miðjarðahafið. Fólk yfirgefur föðurtún og flyst frá einu landi til annars af margvíslegum ástæðum. Bófar fundu þarna féþúfu.

Alþjóðlegir bófahringir mata krókinn á ýmsa vegu. Helst á smygli og smásölu á vímuefnum og þessu næst á vopnum og skotfærum og svo á smygli aðkomufólks til áfangastaða um allan heim.

Fá iðnríki eru þarna undanskilin. Líkast til eru einar sextíu milljónir karla og kvenna sem í dag teljast flóttafólk og hluti þessara milljóna er á faraldsfæti þó lungað af þessu fólki haldi kyrru fyrir í búðum í eða fjarri heimabyggð þeirra.  

Rétt er að minnast þess að það er grunnréttur hvers og eins að eiga kost á að yfirgefa föðurtún sitt og sækja um hæli og fá vernd í öðru landi. Bófar hafa gert þennan grunrétt að féþúfu.

rtá

Nánar www.voanews.com