Marzellíus Sveinbjörnsson leiðir framboð Framsóknarmanna á Ísafirði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar.
Listi flokksins var samþykktur í gær á fjölmennum félagsfundi. Flokkurinn segir að áhersla hafi verið lögð á að fá ungt og hæfileikaríkt fólk í bland við reynslumeiri frambjóðendur með fjölbreyttan bakgrunn. Listann skipa 8 konur og 10 karlar en jafnt kynjahlutfall er í efstu 16 sætunum.
Oddviti verður áfram Marzellíus Sveinbjörnsson umsjónarmaður fasteigna Ísafjarðarbæjar en hann hefur verið bæjarfulltrúi Framsóknar undanfarin fjögur ár. Í öðru sæti er Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir leiðbeinandi og í þriðja sæti er Kristján Þór Kristjánsson svæðisstjóri CCEP. Elísabet Samúelsdóttir þjónustustjóri hjá Landsbankanum er í fjórða sætinu og Anton Helgi Guðjónsson sjávarútvegsfræðingur skipar fimmta sætið.