Marta Nordal tekur við af Jóni Páli Eyjólfssyni sem leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Jóni Páli var sagt upp störfum í desember í fyrra vegna trúnaðarbrests, að því er stjórn félagsins hélt fram.
„Marta kemur til Menningarfélags Akureyrar á spennandi tímapunkti, en fyrir helgi var skrifað undir nýjan samning Akureyrarbæjar og MAk um stuðning sveitarfélagsins við starfsemi félagsins næstu þrjú árin,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.
Marta Nordal lék fyrir Leikfélag Akureyrar á árum áður. Auk þess hefur hún verið leikkona hjá Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu, en undanfarin ár hefur hún alfarið einbeitt sér að leikstjórn.
Árið 2010 stofnaði Marta, ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikhópinn Aldrei óstelandi og hefur hópurinn framleitt fimm sýningar. Auk þess hefur hún leikstýrt fjölda verka fyrir útvarp. Um þessar mundir leikstýrir hún söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur síðar í mánuðinum í Borgarleikhúsinu.
Marta er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í leiklist frá The Bristol Old Vic Theatre School. Hún hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa innan sviðslista. Hún sat um langt skeið í stjórn Leikfélags Reykjavíkur og í stjórn Íslenska dansflokksins, auk þess sem hún var forseti Sviðslistasambands Íslands 2013-2017.