Marta María Jónsdóttir, stundum nefnd Marta smarta segist í forsíðuviðtali nýjasta heftis tímaritsins MAN að gagnrýni sem hún hafi fengið vegna starfa sinna hafi oft og tíðum verið særandi.
Hún segist þó í viðtalinu ekki hræðast gagnrýni þótt hún hefur svo sannarlega verið á milli tannana á fólki undanfarin ár. Og þá kveðst hún heldur ekki smeyk við áskoranir, en nýverið tók hún við dómarasæti í raunveruleikaþáttunum Ísland Got Talent sem vakti umtal og deilur.
Hún segist hafa gert mörg mistök í starfi, t.a.m þegar hið fræga ógæfukonumyndband vakti upp mikla reiði í samfélaginu.
Eftir skilnað fyrir tæplega þremur árum síðan fann Marta ástina á ný með Páli Winkel fangelsismálastjóra og er alsæl með lífið og tilveruna. Hún segist alltaf hafa þurft að vinna fyrir öllu sínu sjálf og veigrar sér ekki við stór verkefni, hvort sem þau eru að gera upp húsnæði nánast ein síns liðs eða ala upp tvo syni með sérþarfir.
Jólablað MAN kemur í verslanir á morgun.