Marta gefur ranga mynd af efni minnisblaðsins

Fullyrðingar sem fram koma í yfirlýsingu Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vegnaminnisblaðs Helgu Bjarkar Laxdal skrifstofustjóra borgarstjórnar, eru ekki í samræmi við efnisinnihald minnisblaðsins. 

Marta heldur því fram að í minnisblaði skrifstofustjórans sé hún sökuð um að hafa, með ásökunum í garð starfsmanna borgarinnar um trúnaðarbrest og upplýsingaleka, brotið gegn siðareglum. Hið rétta er að Marta er hvergi sökuð um slíkt í minnisblaðinu.

Nánar á

 https://stundin.is/grein/7049/marta-gefur-ranga-mynd-af-efni-minnisbladsins-og-hildur-telur-sig-obundna-af-sidareglum/