Í þættinum Lóa og lífið í kvöld fær Lóa til sín tónlistarparið Margréti Eir og Jökul, en þau segja frá samstarfi sínu innan tónlistabransans þangað sem þau komu hvort úr sinni áttinni.
Þá tala þau um að mikilvægi þess að ögra sjálfum sér innan bransans og gera eitthvað nýtt, en Jökull metur það sem svo að að þægindarammi skaparans sé ekkert annað en dauði.
Í þættinum taka þau Margrét Eir og Jökull lagið Blue Bayou eftir Lindu Ronstadt, en söngparið er með tónleika í Salnum í Kópavogi næstkomandi laugardag, 19.mars, til heiðurs henni.
Þátturinn er sýndur kl. 20:00 í kvöld á Hringbraut.