Sá reyndi þjóðmálarýnir til áratuga, Jónas Kristjánsson segir leynt og ljóst stefnt að því að skipta íslenskri þjóð í þá sem hafa efni á velferðinni og þá hina sem geta ekki leyft sér hana.
\"Tvískipting þjóðarinnar magnast stöðugt,\" skrifar hann í nýjasta pistli sínum á jonas.is. Nú megi skipta skipta fólki eftir æðahnútum, ekki bara eftir augasteinum og heilum tönnum, bendir hann á: \"Hver þátturinn á fætur öðrum er tekinn út úr magnþrota velferðarkerfi og færður inn í einkarekstur.\"
Hann telur upp þjónustuna: \"Góðar tennur kosta hundruð þúsunda, sem hálf þjóðin hefur ekki efni á. Augasteinar kosta 300.000 krónur, sem hálf þjóðin hefur ekki efni á. Nú bætist við frelsi frá æðahnútum fyrir 150.000 krónur, sem hálf þjóðin hefur ekki efni á.\"
Niðurstaða þessa gamalreynda ritstjóra er þessi: \"Þetta er markviss græðgivæðing heilsunnar. Sem í annan stað lýsir sér í, að varnarlausir eru gerðir að verktökum og lífskjarabotninn lækkaður niður úr lágmarkslaunum.\"