Markið að komast í efstu fimm

Ísland er í 13. sæti yfir þau ríki sem standa fremst í nýsköpun samkvæmt  mælikvarða Global Innovation Index 2016. Sviss er fremst líkt og á síðasta ári. Svíþjóð er í 2. sæti og hefur færst upp um eitt sæti. Bretland datt niður í 3. sætið en var í 2. sæti fyrir ári síðan. Bandaríkin eru í 4. sæti og fóru upp um eitt sæti. Finnland er í 5. sæti og fór upp um eitt sæti. 

Danmörk færðist upp um tvö sæti og er nú í 8. sæti. Noregur hefur hins vegar dottið niður um tvö sæti og er nú í 22. sæti listans. Engin breyting varð á stöðu Íslands á listanum því fyrir ári síðan var Ísland einnig í 13. sæti.

Að mælingunni standa Cornell University, INSEAD og World Intellectual Property Organization (WIPO).

Þetta kemur fram í upplýsingum frá Samtökum iðnaðarins (SI). Á vefsíðu samtakanna segir að markmið SI er að Ísland sé í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun og markmiðið sé að Ísland verði meðal fimm efstu landa í lista Global Innovation Index árið 2020.