Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju og formaður Bílgreinasambandsins, er gestur hjá Jóni G. í kvöld. Þeir ræða um áætlun ríkisstjórnarinnar um að engir dísil- og bensínbílar verði nýskráðir eftir árið 2030 og velta því fyrir sér hvers vegna tæknin og markaðurinn séu ekki látin um skiptin yfir í rafbíla. Fyrir fimmtán til tuttugu árum hvöttu stjórnvöld fólk til að kaupa dísilbíla en nú á að banna þá. Og það þrátt fyrir að dísil- og bensínbílar búi yfir allt öðrum og betri mengunarbúnaði en fyrir t.d. tíu árum. Séu í rauninni allt aðrir bílar.
Þá hefur Bílagreinasambandið enn ekki fengið svar frá fjármálaráðherra um að draga úr skattaálögum á nýja bíla, t.d. með lækkun vörugjalda, vegna nýrra evrópustaðla um útblástur bíla. Bílgreinin segir að ef ráðuneytið gerir ekkert í málunum hækki verð bíla um 20 til 30% á næstunni. Raunar er verðið þegar farið að hækka. Þetta mál er búið að vera í hámælum frá því snemma vors – en ennþá bólar ekkert á svari frá ráðunetyinu þótt svars sé að vísu að vænta næstu daga; jafnvel fyrir vikulok.