Markaðsvirði makríls fimmfalt hærra

Kílóið af makríl er ekki undir 50 krónum í frjálsri sölu í nágrannalöndum Íslendinga, að því er heimildir Hringbrautar herma, eða fimmfalt hærra en sem nemur veiðigjaldinu sem stjórnvöld hafa ákveðið á þennan verðmæta flökkustofn sem hefur gert sig gildandi í vistkerfi íslenskrar lögsögu á undanförnum árum svo um munar. Engu að síður gjalda íslenskir útgerðarmenn og samtök þeirra varhug við svo háu veiðigjaldi á makríl sem stjórnvöld afréðu í dag, en það dragi mjög úr arðbærni veiðanna og samkeppnishæfni íslenskra fiskseljenda við önnur lönd. Ráðherra hefur sagt gjaldið, sem tilkynnt var í dag, vera hóflegt, en stjórnarandstaðan á Alþingi segir það hins vegar vera fjarri öllu lagi - og vísar til fyrrgreindra upplýsinga um raunvirði í frjálsum viðskiptum.


Makrílveiðar hafa á undanförnum árum skipt uppsjávarfyrirtæki verulegu máli í rekstri og aukið ábata þeirra að miklum mun, enda um hreina viðbót að ræða í rekstri þeirra sem fram að þessu hefur verið veidd án endurgjalds í sameiginlega sjóði landsmanna. Á síðasta ári nam heildarútflutningsverðmæti makríls 22,4 milljörðum króna, 2,2 milljörðum meira en árinu þar á undan.