Markaðsvirði icelandair langt undir bókfærðu virði

Verð­mið­inn á Icelandair nemur nú um 40 millj­örðum króna. Hann fór hæst í um 180 millj­arða, og hefur því hrapað um 140 millj­arða á til­tölu­lega skömmum tíma, eða um tveimur árum.

Kjarninn segir frá. 

Það er til marks um breytta tíma hjá félag­inu, að verð­mið­inn er nú tölu­vert undir eigin fé félags­ins. Það nemur um 55 millj­örð­um, sé miðað við stöð­una eins og hún var í lok fyrsta árs­fjórð­ungs. 

Frá því að afkomu­spá félags­ins var upp­færð, 8. júlí síð­ast­lið­inn, má segja að kast­ljósið hafi verið á þessu forn­fræga félagi, sem almenn­ingur á að stærstum hluta í gegnum líf­eyr­is­sjóði lands­manna.

Í fyrstu við­skiptum eftir að afkomu­spáin var leið­rétt niður á við, lækk­aði mark­aðsvirði félags­ins um fimmt­ung og sagði þá í til­kynn­ingu frá félag­inu að tími breyttra tíma væri runn­inn upp, með skipu­lags­breyt­ingum og hag­ræð­ing­u. „Sú staða sem við erum að horfa upp á núna er okkur tals­verð von­brigði. Sú þróun með­al­verða sem við gerðum ráð fyrir á síð­ari hluta árs­ins virð­ist ekki vera að ganga eftir og því lækkum við tekju­spá félags­ins. Verð­þróun á mik­il­vægum áfanga­stöðum hefur ekki verið eins og áætl­anir okkar gerðu ráð fyrir og það hefur nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­spá. Horfur hafa farið versn­andi í íslenska ferða­þjón­ustu­hlut­an­um, sér­stak­lega hjá Iceland Tra­vel. Þær miklu skipu­lags­breyt­ingar sem félagið hefur gengið í gegnum und­an­farið ár hafa að mestu gengið vel og gripið hefur verið til fjöl­margra aðgerða í rekstr­inum til að styrkja það til fram­tíð­ar. Árið 2018 er ár mik­illa breytinga og fjár­fest­inga sem gera félag­inu kleift að vaxa og dafna,“ sagði Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri, meðal ann­ars af þessu til­efni.

Icelandair er með mik­il­væg­ustu fyr­ir­tækjum í íslensku atvinnu­lífi vegna umfangs félags­ins í íslenskri ferða­þjón­ustu, sem er hryggjar­stykkið í hag­kerf­inu eins og þró­unin hefur verið á und­an­förnum árum. Um 95 pró­sent erlendra ferða­manna sem koma til lands­ins koma í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl og er Icelandair umfangs­mest þeirra flug­fé­laga sem fljúga til lands­ins. 

Þá eiga líf­eyr­is­sjóðir lands­manna stóran hluta hluta­fjár, en Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti eig­andi félags­ins með 13,99 pró­sent hlut.

Heild­ar­eignir félags­ins námu um 1,6 millj­arði Banda­ríkja­dala í lok árs, eða sem nemur um 170 millj­örðum króna. Rekstr­ar­tekjur á ári hafa verið í kringum 1,3 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 140 millj­örðum króna. 

Upp­gjör félags­ins vegna 2. árs­fjórð­ungs verður birt í dag, og fer fram kynn­ing­ar­fundur vegna þess á morg­un, þar sem for­stjóri og fjár­mála­stjóri félags­ins fara yfir rekst­ur­inn á tíma­bil­inu.