Markaðstorg nýrra hugmynda

Fréttaveitur í Frakklandi eru í dag mjög á öndverðum skoðunum um hvor frambjóðandinn sigrar næstkomandi sunnudag. Marine Le Pen vinnur á hægt og bítandi.

Marine Le Pen hefur sagt að sér liggi ekkert á lengur í Evrópumálum og Evrópusambandsmálum(ESB). Hún myndi ekki í einum hvelli draga Frakkland úr úr Efnahags- og myntbandalagi ESB.

Aðild merkir heimild/skyldu Frakklands til að hafa evruna sem gjaldmiðil. Frakkland skal sömuleiðis uppfylla skilyrði um stöðugleika í peningamálum og ríkisfjármálum. 

Á einföldu máli merkir þetta lága vexti og verðbólgumarkmið og strangar hömlur á hallarekstri ríkissjóðs og skuldasöfnun hins opinbera og skylduaðild að fastgengiskerfi ESB.  Marine Le Pen og franska Þjóðfylkingin eru að ná áttum. Kosningarnar eru um efnahagsmál og vinnumarkaðsmál. 

Mikill fjöldi Frakka er fráhverfur trúmálum en mun fleiri Frakkar eru fráhverfir borgaralegu þjóðfélagi - kaupsýslustéttarinnar.  Einn ritstjóri orðar þetta svo að annars vegar verði að gera greinarmun á réttmætri óánægju franskra almúgamanna með hlutdeild þeirra í þeim gæðum sem franska lýðveldið útdeilir borgurunum - þótt sú óánægja sé ekki alltaf skynsamleg - og hinsvegar á andúð stórs hluta frönsku borgarastéttarinnar á sjálfri sér.

Andúð á borgaralegu þjóðfélagi hefur haldist fram á þennan dag. Það er því auðvelt að taka þjóðfélagsgagnrýni Marine Le Pen og frönsku Þjóðfylkingarinnar of alvarlega. Þorri Frakka hefur trú á frönskum pólitíkusum með gott vald á franskri tungu sem hafa eitthvað nýtt að leggja til málanna í vandamálum frönsku þjóðarinnar. Marine Le Pen nær því eyrum þorra franskra kjósenda. En hvor þeir kjósa hana á sunnduaginn á eftir að koma í ljós. Á markaðstorgi nýrra hugmynd getur allt gerst.