Markaðspunktar 4.apríl 2017

Samhliða efnahagsuppgangi síðustu ára hafa utanríkisviðskipti Íslands aukist. Greiningardeild Arion banka er með umfjöllun um þetta í dag.

Aukninguna má rekja til vaxandi innflutnings og margföldun erlendra ferðamanna.

Ekki má gleyma að vöruútflutningur hefur sótt í sig veðrið og það umtalsvert. Þannig hafa gjaldeyristekjur af sjávarafurðum og ýmsum öðrum vörum aukist frá 2010 á föstu gengi.

Á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hélt þessi þróun áfram með vaxandi innflutningi í öllum vöruflokkum ásamt vaxandi vöruútflutningi.

Samdráttur í útflutningi sjávarafurða var vissulega verulegur sökum verkfalls sjómanna.

Í nýútkominni hagspá Greiningardeildar Arion banka er spáð að bæði innflutningur og útflutningur fari áfram vaxandi til ársins 2019.

Spáin gerir ráð fyrir áframhaldandi afgangi af vöru- og þjónustujöfnuði.

Og styrkingu krónunnar! 

En ekki þarf ýkja mikið að breytast til þess að afgangur snúist í halla. Þá aukast líkur á veikingu krónunnar.